Snorri Þór Jóhannesson

Snorri Þór Jóhannesson fæddist í Vestmannaeyjum 19. júlí 1940. Hann lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi við Hringbraut 23. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóhannes Pálmason, f. 10. jan. 1914, d. 22. maí 1978, prestur, prófastur og kennari á Stað í Súgandafirði og síðar í Reykholti í Borgarfirði, og Aðalheiður Margrét Snorradóttir, f. 29. okt. 1914, húsfreyja á Stað í Súgandafirði, í Reykholti og síðar í Kópavogi. Systkini Snorra eru Kristín, f. 23. febr. 1945, d. 6. apríl 1953, Sigrún, f. 1. okt. 1947, maki Jón Sigurðsson, Pálmi, f. 7. febr. 1952, maki Soffía Kjaran, og Sigurður, f. 2. apríl 1954, maki Halla Hafdís Guðmundsdóttir.

Snorri kvæntist 6. júlí 1963 Sigríði Bjarnadóttur, f. 22. febr. 1938, kennara í Reykholti og síðar húsfreyju í Kópavogi. Snorri og Sigríður eiga tvo syni, þeir eru: 1) Jóhannes, sambýliskona hans er Sigrún Jónsdóttir, þau eru búsett í Reykjavík og 2) Bjarni, eiginkona hans er Bente Tønnesen, þau eru búsett í Noregi. Synir Bjarna og Thelmu Theódórsdóttur eru Aron Snorri, Theódór Elmar og Brynjar Orri.

Snorri lauk landsprófi frá Héraðsskólanum á Núpi 1955 og varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1960. Hann nam ensku og dönsku við heimspekideild Háskóla Íslands1961-62. Hann var við nám við Morey House Teachers Training College í Edinborg 1963-64, lauk BA-prófi í ensku, landafræði og uppeldisfræði frá Háskóla Íslands 1967 og var við nám í dönsku við Háskóla Íslands veturinn 1989-90 (orlof).

Snorri stundaði sjómennsku á námsárum. Hann var kennari við Barna- og unglingaskólann í Njarðvík 1962-63, við Héraðsskólann í Reykholti í Borgarfirði frá 1967, skólastjóri þar 1974-75 og 1991-92, yfirkennari frá 1980. Kennari við Rimaskóla frá 1996-2001 og í hlutastarfi frá 2001 til dánardægurs.

Snorri sat í sáttanefnd Reykholtsdalshrepps 1974-78, í stjórn bókasafns Reykdæla 1978-82, var meðhjálpari við Reykholtskirkju 1978 til haustsins 1989 og hafði umsjón með árbók Héraðsskólans í Reykholti 1974-89. Snorri sat í stjórn Súgfirðingafélagsins frá 2001.

Höfundar minningargreina: